Já halló og góðan daginn... það vantar ekki hvað maður er alltaf
asskoti duglegur að pikka inn, en jú ég er ekki frá því að
ævintýrin hafi verði nokkur frá síðustu færslu.
Ég er nú aðallega bara búin að vera að hanga með vinkonum mínum
og læra og ekki má gleyma sjónverpinu sem er, því miður,
órjúfanlegur þáttur í mínu lífi. Á fimmtudaginn síðasta skelltum
við okkur í bæinn, nokrar skvísurnar, Heiða, Arna, Ólafía og ég.
Planið var að hittast á sólon kl. 21, ég bara okeij.. ekki málið,
átti að taka Lóu með, NÓ probbleimó... eeen þar sem tímaskyn
mitt er BREGLAÐ var ég aðeins sein á ferðinni, en ég og Lóa mætum á
svæðið 40 mín eftir áætlaðan tíma (ji, við hafðum getað verið
komnar vestur í flugi..) en við náðum að villast smá með því að
vera taka einhverja sjort-köttara... En hvað um það, á Sólon var
bara svaka stuð og þar hittum við nokkra Bolvíkinga, sem er
náttúrulega bara alltaf skemmtilegt og við skvísurnar spjölluðum
heil lengi og rifjuðum upp gamla tíma.
En einhvern tíma verður allt að taka endi, við pilluðum okkur út
eftir langa setu og hoppuðum upp í bílana okkar, kvöldið var alls
ekki búoð hjá okkur Lóu, við skruppum á Hverfis (oj - sorrí barasta
fíla þennan stað ENGAN veginn) og þar smellti Lóa kossi á sinn
heittelskaða, Pétur Jóhann Sigfússon, djók... Magga sinn og eftir
það var stefnan tekin á BB... ummmm.... já og þar gerðist margt
fyndið, ömmm segjum að það tengist remúlaði but, gildir einu. Svo
er förinni heitið heim í ból, gellurnar með bros á vör og bara
syngjandi glaðar...EEEEEEENNNNN ó nei ég get varla skrifað þetta...
ókei... hhhh... ég varð BeNsÍnLaUs
já við voru að keyra á
Sæbrautinni... ekki beint heppilegur staður, við rétt náðum að
keyra út í vegarkannt en fólki var eigilega alveg sama um okkur,
enginn kom og bauð hjálp sína...
já svona er þetta í
Reykjavíkinni.. en hann Raggi minn kom til bjargar með brúsa og
trekkt... thank god for him
já svona fór um bílferð þá 
Ég og Raggi vorum með tvö matarboð um helgina, annað var ekki
planað, Imba og Guðmundur Atli komu í pizzu á föstudeginum sem var
bara æði, á Laugardeginum var ég búin að preppa gott boð, Addi og
Íris komu og auðvita var Linda litla snúlla með. Ragnar og
Birta voru inn í herbergi að leika sér, æj þeim langaði svo mikið
að vera með... en þetta heppnaðist furðu vel, allir saddir og
sáttir 
En aðal tilkynningin er sú..... að ég er komin með NÝJA
síðu (bara ég - ArndísA) og er slóðin.....
http://arndisa.bloggar.is/ tékkið
á þessu.... er búin að setja inn FULLT af myndum.... Njótið